Um svæðið
Kotið er saunahús staðsett við Guðlaugina á Langasandi, Akranesi. Þar getur þú notið hlýjunnar, slakað á og náð einstakri tengingu við sjóinn og umhverfið.
Við erum með Klúbbhús við Aggapall, ásamt búnings- og salernisaðstöðu, sem tryggir gestum góða og þægilega upplifun frá upphafi til enda.
Guðlaug er dásamleg heit laug við Langasand með útsýni yfir Faxaflóann. Gestum Kotsins gefst kostur á að kaupa aðgang í Guðlaugu á sérkjörum ef Gusa hittir á opnunartíma. Einnig er laugin leigð út fyrir hópa sem hentar vel með EINKAKOT tímunum okkar.
Langisandur er ein af útivistarperlum Akraness og er eina bláfána ströndin á íslandi. Bláfáninn merkir að gæði vatns og sjávar sé tryggt með reglulegum mælingum. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur málið betur hér: https://www.akranes.is/thjonusta/umhverfi/blafaninn
